Anna M

Hi people!

09.01.2008 10:45:24 / leikari

Komin aftur!!!!!

  

 

Komin aftur!!!

 

jæja þá er ég komin aftur á paparoach síðuna gömlu!!! nú er skólinn byrjaður aftur á vorönn árið 2008!!! í þessum töluðu orðum sit ég í félagsfræði tíma og kennarinn er að tala um hvað ísland er lítið land en nær samt að vera flókið og við verðum að sjá samfélagið frá mörgum hliðum og ekkað. þetta er svo sem allt í lagi ég bara veit ekkert hvað ég á að segja eða gera þannig að ég ákvað bara að byrja á síðunni hérna aftur. Ég veit samt ekkert hvað ég á að tala um. svo ég segi bara....

Gleðileg jólin, sem eru búin, og áramót og allt !!! Velkomið árið 2008!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 12:55:28 / leikari

Ný síða !!!!!!!!

 

TinyPic image

 

ég er með nýja síðu núna sem er :

 

www.blog.central.is/skylight

 

þá síðu eru við stelpurnar saman í eða : Ég, Sara, Telma og Rakel!!!!

 það verður að minnsta kosti litríkara en þessi síða!!! hehe fleiri myndir og örugglega settar inn fyrr en ég myndi gera!!!

Ekki mikið komið inn akkúrat núna en það kemur !!!! það er komið um mig !!!

TinyPic image

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 09:32:32 / leikari

Skólinn byrjaður !!!

 

 

jæja þá er komið að því að fara í skólann aftur !!! sem mér finnst ekkert sérstaklega skemmtilegt en mér finnst stundum gott að fá tilbreytingu. en svo verður það einhæft eftir nokkrar vikur. ég þarf sko alltaf að mæta kl 8:20 og svo ég er sko í skólanum frá 8:20 til 16:30 á miðvikudögum og er sko ekki í neinu gati :( það er sko ömurlegur dagur. Þessa önn mun ég ekki hata mánudaga heldur miðvikudaga!!! Jæja þá er komið nóg af þessu depressing stuffi. Ég er núna í ensku með neal !!! hann er mjög fyndinn og skemmtilegur en það eina sem er að eyðileggja fyrir mér er að ég er með fullt af busum í bekk en vonandi verð ég hækkuð upp um bekk. Ég tók sko stöðupróf 16. ágúst en ég er ekki ennþá búin að fá einkunnirnar frá því svo að á meðan verð ég bara að lifa við að vera í ensku 103 en það er þó gott að ég er með neal sem er bara frábær sko !!!!!

Hvað hefur eiginlega verið að gerast ? uhhh sko ég er búin að vera að vinna í allt sumar í sumarbúðum fyrir fötluð börn sem er það skemmtilegasta sem ég hef gert á ævi minni!!! Eftir sumarbúðirnar var ég að vinna í dægrardvöl fyrir fötluð börn og svo er ég núna að vinna á dominos á megavikur í símaverinu. Það er svo sem allt í lagi það er peningur ;) i like money!!!Ég fór líka til noregs í tvær vikur og það var sko ógeðslega gaman!!

ég hef gert bara fullt í sumar ég held að ég hafi aldrei náð að gera svona mikið á einu sumri áður!!! Ég vona að ég muni hafa eins mikið upp úr næsta ári eins og núna þetta sumar!!!

blogga meira seinna !!!

adios amigos!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 16:45:16 / leikari

er í noregi!!!

það er búið að vera gg gaman sko !!! ég er búin að kynnast fullt af fólki og fara með þeim á fullt af stöðum og gera fullt af skemmtilegum hlutum!!!! Ég var í Törnsberg en núna er ég í Oslo og það er bara æði sko !!!! það er gg veður og bara búið að vera frábært!!!! gæti bara ekki verið betra!!! ég er ekki búin að versla mikið en ég er samt búin að kaupa tvö pör af skóm og einar  buxur!!! Svo er ég líka búin að fá nýjan síma gg flottan sko !!!! Ég kem svo aftur til íslands 8. ágúst. það er alveg fullt  búið að gerast og ég segi ykkur stelpur frá því þegar ég kem aftur heim!!! oki bæ í bili !!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 21:27:46 / leikari

kominn tími á blogg !!!!

ég er sko búin að vera með bílpróf í næstum 3 vikur núna!!! ég náði skriflega í 2 skiptið mitt og svo náttla verklega í 1. en reyndar með 8 villur :lol: hehe en ég náði samt þannig að who cares ??? já svo á hún sunna afmæli 11. júlí !!!!! ég veit ekkert hvað ég ætla að gefa henni og ég kemst ekki strax í búð að kaupa neitt fyrr en ég er orðin hressari og ekki í vinnunni sem verður mjög erfitt :S but i will make it!!! i must !! svo er sara að fara að halda afmælið sitt líka en hún á samt afmæli 16. en þá er hún að fara til noregs þannig að hún ætlar að halda það fyrr svo hún geti yfir höfuð haldið uppá það !! :D og hvað á maður að gefa söru ...... :$ ég veit það bara ekki!!!!

hvað langar ykkur í stelpur ?!?!?!?!?!?!

það sem ég gerði þessa helgina...

Föstudagur:  fór í vinnuna kl 8:30 var orðin frekar slöpp og varð svo bara fucking veik eftir hádegi og var að deygja sko. Kláraði samt vinnuna sem var til 20:30 og fór svo bara heim að sofa!!

Laugardagur: VEIK!!!!! Horfði á TV. DVD og ekkað eins og Briged Jones " number of boyfriends zero, relations with Ben & Jerry"!! hehe ég át líka mikið af ben&jerry þess vegna kom þessi setning þarna inní:haha: hehe. "number of losted pounds -1" það á líka við um mig :S hehe :haha:

Sunnudagur: VEIK!!!!!!!!! Horfði meira á TV. Pabbi leigði dvd, babel og rv! svo bara já gerði ég ekkert meira þann daginn frekar en daginn þar á undann.:|

Mánudagur: VEIK!!!! hringdi í vinnuna og tilkynnti veikindin og fór svo aftur að sofa. Vaknaði og fór í tölvuna. Borðaði, horfði á tv, borðaði og borðaði og uhh var ég búin að segja að ég borðaði líka. Horfði á sjónvarpið og uhhh sat já ég sat mikið og uhhhh.... ég stóð upp og skipti um spólu og dvd og sat meira.

Þriðjudagur: VEIK!!!!!!! Bored!!!!! hvað er hægt að gera í þessum heimi þegar maður er VEEEEEEIIIIIKKKKKKUUUUURRRRR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Mér er búið að leiðast fucking mikið í dag!!! hafði sko ekkert að gera!!! nenni ekki að horfa meira á helv**** sjónvarpið!!!! Hata þetta sko !!!! ég vil bara komast í vinnuna og svo að hitta vini  mína ég vil ekki vera heima hj´amér lengur !!!!!!!

Is there anybody out there.................................... SAVE ME PLEASE!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

TinyPic image

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 19:15:40 / leikari

Bílpróf 13.júní AFTUR!!!!

TinyPic image
 

 

shit ég er svo stressuð að ég bara er ekki lengur viss um að ég nái þessu í þetta skiptið heldur :S en ég bara verð að ná því annars :$ já annars veit ég ekki hvað ég geri :S en já hvað er ég búin að vera að gera ? ég skal sko segja ykkur það.

Ég er búin að vera í vinnunni. Tók yfirvinnu nokkrum sinnum og svo er ég búin að vera að læra geðveikt mikið fyrir þetta bílpróf. Núna er ég allaveganna búin að lesa bókina einu sinni. Ég fór með Söru og Agli á kaffihús áðan sem var geðveikt nice. ohhh ÉG+Sara+kaffihús=bananacrebes hehehe það er bara þannig. Svo skutlaði Egill Söru í vinnuna og mér heim og ég bara kláraði að lesa bókina. og núna er ég bara alveg að sofna. :frown: ég bara get ekki lesið án þess að verða að minnstakosti þreyttt og ef ég held svo áfram að lesa þá bara sofna ég :$ ohhh pirrandi ég þarf alltaf að vera með magic við hendina þegar ég byrja að lesa af því að ég bara verð að ná þessu prófi. Ég sko er ekkert mjög góð í þessu sko. Mér gengur ekki mjög vel í prófunum á netinu eða neitt sko :$ ég verð að fara að gera ekkað í þessu. en já ég er að pæla í að skella einum magic í mig og halda svo áfram að lesa.

Zzzzzzzzzzzzzz........

           TinyPic image       TinyPic image       TinyPic image

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 14:04:55 / leikari

Mikið að gerast maður .....

já það er mikið að gerast skal ég segja ykkur. Ég er náttúrulega bara á fullu í vinnunni alla virka daga. Svo hittir maður náttla vinina á kvöldin og svo er ég búin að vera að passa litla frænda minn þessa helgi sem er bara rosalega fínt :D Smá extra þar í vinnu :P svo þegar ég er búin þá bara reynir maður að hitta vini sína. En reyndar þá hef ég ekki hitt stelpurnar síðan .... :O ég veit ekki hvenær 8| jæja stelpur kannski maður fari að hringja í ykkur eða ekkað :$ ég er nú reyndar að fara að hitta Hrefnu í kvöld og horfa á The L-word yeyyy.... :haha: loksins að það kom til íslands og byrjaði að sjónvarpast :haha: já svo er maður bara að fara í skriflega á föstudaginn :D og svo bíó um helgina á unknown :D já það verður frábært. Ég hlakka mikið til !!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 22:13:36 / leikari

Það er bara svona.....

TinyPic image


 

Ég er sko með SLÚÐUR og það fer sko inn á slúður [22.maí 07] ;P hehe jabb ég er búin að fara í ökuskóla 2 tvisvar núna og á bara eitt skipti eftir og svo er það bara prófið sjálft 8| og svo bara ef maður nær prófinu að þá er maður bara fljótlega farinn að keyra á götum bæjarinns :D Ég hlakka mikið til þessa dags þegar ég mun keyra mig sjálf. En já ökuskólinn.... :P já. :D;) hehe Ég er nú bara að vinna þessa dagana en ég á alltaf frí um helgar ;)  endilega call me on weekends and after 16:30 alla virka daga :D

oki þetta er örugglega ömurlegasta blogg sem ég hef bloggað ég veit ekkert hvað ég á að blogga um :S ??????

ÉG set inn nýtt slúður!!!!

Endilega cheaka á því !!!! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 21:47:19 / leikari

Ég átti afmæli í gær !!!!!

hehe já það eru sem sagt komnar fullt af nýjum myndum. Myndir úr afmælinu og líka frá deginum áður þegar ég var með Söru, Jónu, Telmu og Höddu úti hehe. Já bara enjoy.  Afmælið mitt var bara mjög skemmtilegt. Fékk gom af góssi hehe (fornaldar mál) ég er orðin svo gömul maður. Shit bara 17 ára. 8| já Það kom fullt af fólki í afmælið mitt í gær sem var náttúrulega bara frábært :haha:

Takk allir fyrir að koma!!!!!!

Ég vona líka að allir hafi skemmt sér vel. Það gerið ég allaveganna! Svo er ég bara að fara í ökuskólann á morgunn og vonandi fer bílprófið að koma bráðum líka ;) þá fer maður að keyra sig sjálfur út um allt á bílnum sínum 8) jabb you heard right mínum bíl. En ég ætla bara að benda ykkur strax á það að ...

ÉG mun ekki verða senditíkin ykkar!!!!!

en að sjálfsögðu fer ég með sumum ykkar á rúntinn og ekkað svona skemmtilegt. Sumarbústaða ferðir og útilegur bara you name it. En ég ætla ekki að skutlast með neinn út um allt! no way!!!!

En já þá held ég bara að ég hafi ekkert meira að skrifa hérna!!

enjoy everything that's new now!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 10:30:33 / leikari

uhhhh...........

ja ég veit ekkert hvað ég á að blogga um :S það er bara ógeðslega langt síðan ég bloggaði síðast svo ég ákvað bara að blogga núna hvort sem mér líkaði betur eða verr.  Ég er komin með vinnu sem er frábært og vinn á mánudögum til föstudags frá 8-16 eða 17 það er misjafnt. Þetta er mjög fínt sko. Uhhhh.... :$ eitthvað annað sem er í fréttum?..... uhh já ég á afmæli á morgunn. Það er frábært sko. Verð 17 ára ég meina er það ekki skítfínt alveg. Ég held það. Já svo er maður bara að fara í ökuskóla 2 á mánudaginn og svona. Bara margt að gerast og svona. jabb Ég er einmitt að reyna að læra á fullu ........... (pause) NOT!!!!!! hehe:haha: neinei ég segi nú bara svona auðvitað eru maður að REYNA að læra fyrir þetta próf. Ég meina ég er sko geðveikt stressuð. Ég er ekki viss hvort ég nái sko :S 8|  æ maður gerir bara sitt besta, vonar það besta en bíst við því versta :haha: þá verður maður aldrei fyrir vonbrigðum með neitt :haha: Life is a bitch ........  (sá sem þekkir mig best getur örugglega botnað þessa setningu ég bjó til endinn sko)

TinyPic image
jæja hvað á svo að gera í kvöld???? En hvað á að gera á morgunn????? En annað kvöld???? En um nóttina????? jæja oki ef einhver ætlaði að spurja hvað ég væri að gera ja þá er ég mjög upptekin allan daginn, kvöldið og nóttina á morgunn!!!!!!!!!! En ég er aftur á móti ekki að gera neitt á Sunnudaginn nema kannski læra fyrir bílpróf :( ohhh ég nenni því ekki!!!!!! :evil:
ohh ég nenni heldur ekki að blogga meira!!!!!!!! ég er farin að sofa ég þarf meira að segja að vakna snemma þannig að ég er lika upptekin um morguninn á morgunn !!!!!!!!!!!!!!!! jæja góða nótt!!!!!! og dreymi ykkur ölllum .........................MIG !!!!!!!!!!!!!! :haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 19:25:06 / leikari

Goody !! :D

 TinyPic image

hehe frábært haldið þið ekk að ég sé bara búin að ná íslensku, náttúrufræði, lífsleikni og íþróttum :haha: ég er geðveikt ánægð :D ég á þýsku og stærðfræði eftir :s reyndar sko  þá er ég ekki góð í stærðfræði 8| já ég veit ekki gott ha :| nei alls ekki sko. en ég meina ég er búin að ná 9 einingum og á 6 eftir ég meina það getur ekki verið svo slæmt er það ? Já já ég er hins vegar ömurleg í að mæta í gítartíma :S ég missti af tíma síðast og svo í hin skiptin þá var ég í prófi :S ekki gott sko  :S en ég er samt bestust :haha: híhí já en ég ætla aðeins að segja ykkur frá því sem ég er búin að vera að gera upp á síðkastið :D

í gær vaknaði ég kl 10 og ryksugaði allt húsið. Ég tók líka til í herberginu mínu á meðan ég setti fullt af "nýrri" gamalli tónlist sem ég átti á geisladiskum inn á tölvuna mína sem verður sko spilaði í afmælinu mínu :haha: jabb það verður geðveikt. Svo lærði ég fyrir ökuprófið. Ég er að reyna að lesa bókin sko. Ég tók líka próf á netinu og ég sucka feitt. Ég varð svo pirruð að ég hætti þegar ég var löngu búin að falla :evil: ekki gaman sko :( en já þegar ég var bara í sakleysi mínu að læra úti á svölum, sko í bikiní topp og stuttu pilsi( ég var sko í sólbaði) svo kom ég inn til að skipta um lag í græjunum og þá standa Sara og Telma fyrir inna hjá mér og mér brá geðveikt mikið sko og svo stuttu seinna fóru þær og ætluðu að gera sig til á meðan ég borðaði kvöld mat og svo ætluðum við í sund. En svo hættum við við það. Ég fór í staðin til Söru og við fórum að "læra" og svo fórum við að kaupa okkur ís og vorum bara ekkað úti labbandi á milli róluvalla ekkað að fíflast bara :haha: og við sko vorum ógeðslega duglegar og löbbuðum alveg niður í smárann og upp í fossvoginn og kom samt heim kl 12 :D og ég fór meira að segja ekki á msn eftir það heldur fór ég að sofa :haha: vá hvað ég var stolt af mér maður shit :D

Dagurinn í dag !!! í dag vaknaði ég ekkað um 9 leitið þegar Sara hringdi í mig ég fór á fætur í sturtu og gerði mig til og svo kom hún og ég hjálpaði henni með stærðfræði hún kom um hálf 11 leitið og svo nenntum við ekki meir að læra og fórum á subway :haha: eftir það fórum við bara ekkað að labba. Ekkað að hanga í rólunum í kópavogsskóla :) og svo bara heim til Söru. Vorum þar til svona 15 á msn og fórum þá aftur heim til mín að læra stærðfræði :D geðveikt duglegar sko. en þegar við vorum búnar að vera þar í svona einn klukkutíma þá fórum við heim til Höddu að éta no baked cookies. Ég bjó líka til Stærðfræði próf fyrir höddu sem henni gekk vel á. Það voru reyndar bara 5 dæmi en hún fékk 7,5 á prófinu :D hehe Sara gerði nú bara tvö dæmi á þessu prófi :haha: hehe ég elska þig samt sara mín ;) hehe.  Svo fór Sara heim af því að hún var svo þreytt :lol: hehe og ég og Hadda fórum heim til mín að "læra" Ég málaði hana og svo vorum við bara á msn og svo fór hún kl 7 í ræktina. Ég borðaði síðan bara rétt eftir að hún fór og svo kom Bjarki vinur minn úr HÍ að hjálpa mér í stærðfræði og wow ég held að ég kunni miklu meira núna heldur en ég hafi gert sko. Án gríns ég lærði geðveikt mikið sko. En núna er hann farinn og ég er að fara að læra fyrir Þýskuprófið sem er á morgunn :O fuckk sko. Ég er samt ekkert léleg í þýsku sko en það er einmitt það sem ég er geðveikt hrædd um er að ég haldi að ég sé geðveikt góð í þessu af því að ég er búin að vera í þýsku í 9. bekk og líka í bandaríkjunum og þá sé ég með geðveikt sjálfstraust og haldi að ég sé geðveikt góð í þessu og svo bara skíti ég á mig í prófinu :S ekki gott sko :S en já ég hef ekkert meira að segja. En ég er að fara að læra fyrir þýsku og svo ætla ég að fá mér að éta meira og svo ætla ég bara að fara að sofa sko . ;) góða nótt allir og sjáumst kannski  á morgunn eða ekkað fyrir kannski einhverja sem lesa þetta blogg :s ég meina maður veit aldrei hver skildi fara að lesa bloggið hjá manni maður en já ok ég held að ég hafi nú bara slegið gott með með sjálfri mér í að blogga mikið í einu maður shit ég held að ég hafi aldrei blogga svona stórt blogg á ævi minni sko :O hehe ég er alla veganna stolt :haha: and so should you Sara Yvó :haha: heheh einkahúmor

TinyPic image


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 16:21:35 / leikari

Þetta er verra en ég hélt....

ég er svo slæm manneskja að ég er orðin tilfinningalega heft. í alvöru sko þetta er ekki gott. Ef þú þekkir mig ekki þá myndi ég passa mig. Mér er alveg sama um allt (nei reyndar ekki þetta voru ýkjur) og Ég er farin að tala geðveikt illa um sjálfa mig en samt er mér alveg sama. Ég get ekki farið að gráta. Ég þarf að fá einhvern með mér í að horfa á einhverja dramatíska sorglega mynd með ís með súkkulaði sósu og meira súkkulaði og hjálpa mér að gráta. Ég verð að gráta. Það er svo langt síðan ég hef grenjað að mig virkilega vantar það núna :S Ef einhver veit ekkað ráð fyrir mig eða einhverja geðveikt sorglega dramatíska mynd sem ég get horft á eða bara whatever i don't care anymore bara ekkað svo að ég geti grenjað. og ég er að tala um að grenja af sorg ekki gleði eða sársauka. Ég er sem sagt að biðja ykkur um ráð en ekki að lemja mig ef þið sjáið mig :S verið nú góð við mig ég er búin að vera svo vond við sjálfa mig undanfarið að ég þarf virkilega að gráta en ég bara get það ekki.

Ég er tilfinningalega heft!!!!!!!!!

Your Image ThumbnailYour Image ThumbnailYour Image Thumbnail



» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 11:46:14 / leikari

Prófin í gangi.

 

 

Núna dugar ekkert að vera latur. Prófin eru núna og ekki seinna. Fyrsta prófið var í dag. Næsta próf er 7. maí hjá mér. það er stærðfræði :S 8| shit mar.  Hvað á maður að gera í þessu? fara að læra???? ja það er spurning ! Ég er ömurleg í stærðfræði ég á eftir að skíta á mig á þessu prófi maður :S Ég hef allaveganna tíma til að læra ekki það að ég geri það frekar þó að ég hafi tíma :^):lol: hehe æ maður gerir samt ekkað. Maður vill ekki falla. ó nei ekki í stærðfræði á nátturufræðibraut :lol: svona er þetta. Ég er bara í svo miklu stuði núna að ég er að deyja mig langar að djamma og það feitt á miðvikudegi kl hehe 11:41 heheh er það ekki dálítið flippað :D hehe. svona er maður flippaður maður. Ja það gerir bara skapið sem ég er í núna. Ég er í geðveikum fíling. jæja ég ætla að setja inn nýtt slúður og ekkað blogga kannski á biah endilega einhver kommenta þar plízzzzzzz:$ ok svo þarf ég líka að læra fyrir bílprófið. þannig að ég er hætt að blogga núna í bili.

bæ love ya all

Your Image Thumbnail



» 3 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 18:26:00 / leikari

Ræktin kallar !!!!!!!!!

já það er rétt. Ég er að fara í ræktina og glápa á alla sveittu mössuðu gaurana og slefa. Ef það er einhver gaur sem vill ekki láta glápa á sig þá ekki mæta í ræktina í dag!!!!!!!!! og ef það er einhver sem fílar það þá plíz endilega mætið í ræktina í dag og leyfið mér að glápa og svo ekki spara svitann því ég fíla sveitta gaura maður ;P hehe :haha: jabb ég er ekki að djóka. ohh ég nenni ekki að blogga. Þið sem lesið þetta þið verðið að commenta. jæja hvað á ég svo sem að segja ykkur sem eruð að lesa þetta blogg. Ég er búin að blogga á biah þannig að ef það er einhver þarna sem er að lesa þetta af því að honum eða henni leiðist þá er blogg þar líka og ég er líka búin að setja nýtt slúður á þessari síðu. og svo kannski bloggar maður á lummurnar_ líka ja það er aldrei að vita. En ég þarf að fara að taka mig til að fara í ræktina.

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 01:53:42 / leikari

Góða nótt!!!!

 

 

 

ef þið viljið betra blogg þá er það ekki gamalt sem er fyrir neðan sko !!! blogga meir á morgunn!!!!!

Your Image Thumbnail



» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Afm�?�?�?¦li�?�?�?° mitt
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1038 dögum